Reykjavík · Eric Kilby, CC BY-SA 2.0

Frítt verðmat 454-5464
Forsíða / Þjónustur / Búslóðaflutningar

Búslóðaflutningar

Fagmannleg, örugg og yfirveguð vinnubrögð. Við berum virðingu fyrir öllum verkefnum og eigum.

Hlaðinn kassabíll með opinni lyftu
Heimili á milli staða

Við berum, þú stýrir

Þegar flytja þarf alla búslóðina á milli tveggja eða fleiri staða mætum við með bíl, bílstjóra og aðstoðarmenn eftir stærð verksins. Bílstjórarnir okkar taka fullan þátt í að hlaða bílinn.

  • ÁreiðanleikiVið mætum á umsömdum tíma og klárum verkið.
  • Virðing fyrir eigum og verkefnumFarið vel með húsgögn, veggi og stigaganga.
  • Hröð og örugg þjónustaVanir menn sem vita hvernig á að raða í bíl.

Gott að vita fyrir flutningsdag

  • Tæmdu húsgögninSkúffur og skápar verða mun léttari og öruggari í burði.
  • Taktu frá stæðiGott aðgengi fyrir bílinn styttir tímann og lækkar verðið.
  • Lokuð ílátSettu lausamuni í kassa eða poka.
  • Þungir hlutirLáttu vita af píanói eða amerískum ísskáp fyrirfram.
Skref fyrir skref

Svona ganga búslóðaflutningar fyrir sig

Þarftu að flytja búslóð? Flutningslausnir er flutningsþjónusta sem sér um verkið frá fyrsta símtali þar til síðasti kassinn er kominn inn.

  1. Þú hefur sambandSegðu okkur hvaðan og hvert á að flytja, hvenær og hve stórt heimilið er.
  2. Frítt verðmat og tilboðVið metum verkið þér að kostnaðarlausu og sendum þér tilboð.
  3. FlutningsdagurinnVið mætum á umsömdum tíma, berum allt út og röðum í bílinn. Vörulyfta er á bílunum fyrir þunga hluti.
  4. Komið fyrir á nýja staðnumVið berum inn og setjum húsgögn og kassa í þau herbergi sem þú velur.
Innifalið

Hvað er innifalið?

  • Bíll og bílstjóri sem ber meðBílstjórinn tekur fullan þátt í burðinum, með aðstoðarmönnum eftir stærð verksins.
  • Burður út og innStigar og langur burður breyta ekki tímagjaldinu, þótt verkið geti tekið lengri tíma.
  • Akstur milli staðaKassabíll (18 m³) fyrir flestar íbúðir og risakassabíll (36 m³) fyrir stærri heimili.

Hægt að bæta við

  • Pökkun og flutningarVið pökkum öllu heimilinu eða bara því viðkvæmasta og komum með efnið.
  • SorpuferðÞað sem á ekki að fara með förum við með í Sorpu. Förgunargjöld Sorpu bætast við.
Hvar við flytjum

Búslóðaflutningar innanlands

Við flytjum búslóðir á höfuðborgarsvæðinu alla daga og keyrum um allt land frá Reykjavík og Þorlákshöfn. Meðal algengra áfangastaða eru Reykjanesbær, Selfoss, Hveragerði, Þorlákshöfn, Akranes og Borgarnes.

Nánar um flutninga milli landshluta →

Búslóðaflutningar: verð og tilboð

Verðið ræðst af magni, vegalengd og aðgengi. Tímagjald og þjónustupakkar eru í verðskránni. Endanlegt verð færðu í tilboði eftir frítt verðmat.

Sjá verðskrá →
Algengar spurningar

Spurt og svarað um búslóðaflutninga

Hvað kosta búslóðaflutningar?+

Það fer eftir stærð búslóðarinnar, vegalengd og aðgengi. Unnið er á tímagjaldi eða eftir þjónustupakka. Við metum verkið frítt og sendum tilboð áður en nokkuð er bókað.

Hvað tekur langan tíma að flytja búslóð?+

Þjónustupakkarnir okkar miðast við 3–6 klukkustundir og það dugar fyrir flesta flutninga innanbæjar. Stór heimili og flutningar milli landshluta geta tekið heilan dag eða lengur.

Þarf ég að pakka sjálf(ur)?+

Nei, þú ræður því. Þú getur pakkað sjálf(ur) og látið okkur um burðinn og aksturinn, eða bætt við pökkunarþjónustu þar sem við pökkum fyrir þig.

Flytjið þið búslóðir út á land?+

Já. Við sinnum búslóðaflutningum innanlands um allt land og keyrum bæði frá Reykjavík og Þorlákshöfn.

Hvenær er best að bóka?+

Því fyrr því betra, sérstaklega í kringum mánaðamót þegar flestir flytja. Hafðu samt samband þótt fyrirvarinn sé stuttur.

Fáðu verð í verkið

Frítt verðmat, engin skuldbinding. Við höfum samband við fyrsta tækifæri.

Aðrar þjónustur
Hafðu samband

Sendu okkur línu
um verkefnið

Leyfðu okkur að meta verkefnið þitt, gjaldfrjálst. Við bjöllum við fyrsta tækifæri.

Veistu ekki hvað búslóðin er stór?Prófaðu búslóðarreikninn. Hann áætlar rúmmál í m³, mælir með bíl og getur sent listann með fyrirspurninni.
Sími454-5464
Netfangflutningslausnir@gmail.com
Hvað viltu gera?

Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að svara fyrirspurninni eða bókuninni og eru ekki afhentar öðrum. Persónuverndarstefna

Póstlisti

Fréttu fyrst af tilboðum

Sértilboð, lausir dagar og góð ráð fyrir flutninga. Við sendum sjaldan og bara þegar það skiptir máli.

Þú getur skráð þig af listanum hvenær sem er. Netfangið er ekki afhent öðrum. Persónuverndarstefna

Umsögn

Hvernig gekk flutningurinn?

Við lesum allar umsagnir. Með leyfi þínu birtum við þær á síðunni svo aðrir viti við hverju þeir mega búast.

Einkunn

Fleiri spurningar?

Hringdu eða sendu línu. Við svörum öllum fyrirspurnum og gefum frítt verðmat.

Hringja454-5464Fá frítt verðmat