Reykjavík · Eric Kilby, CC BY-SA 2.0

Frítt verðmat 454-5464
Forsíða / Þjónustur / Dánarbú og heildarrýmingar

Dánarbú og
heildarrýmingar

Við tæmum heimili, geymslur og dánarbú af nærgætni og virðingu. Þið ákveðið hvað fer hvert, við sjáum um burð, akstur og förgun.

Hlaðinn kassabíll með opinni lyftuKassabíll Flutningslausna frá hlið
Dánarbú

Eitt símtal fyrir allt heimilið

Þegar ganga þarf frá búi eftir andlát er í mörg horn að líta. Við tökum að okkur að tæma íbúðina, geymsluna og bílskúrinn, svo fjölskyldan geti einbeitt sér að því sem skiptir máli.

Við vinnum í samráði við erfingja eða skiptastjóra. Áður en við byrjum förum við yfir það með ykkur hvað á að fara hvert.

Heildarrýming á líka við þegar íbúð er seld, geymsla er tæmd eða fyrirtæki rýmir húsnæði.

  • Til erfingja og ættingjaMunir og húsgögn fara til þeirra sem eiga að fá þau, líka út á land.
  • Í geymsluÞað sem bíður skipta förum við með í geymslu.
  • Nytjamarkaðir og SorpaÞað sem er nothæft fer á nytjamarkað og afgangurinn í Sorpu. Förgunargjöld Sorpu bætast við.
  • Pökkun á viðkvæmum munumMyndir, skjöl og erfðagripir pakkaðir af varúð.

Ef verið er að flytja á hjúkrunarheimili eða í minna húsnæði, sjá Tæming íbúða.

Hvernig við vinnum

Í samráði við fjölskylduna

Einn tengiliður fyrir allt verkið, frá fyrsta símtali þar til búið er tómt.

Nærgætni

Við förum með heimilið þitt eins og það væri okkar eigið.

Allt á einum stað

Burður, akstur, pökkun og Sorpuferðir. Eitt símtal dugar.

Samstarfsnet

Í stærri verkum köllum við til samstarfsaðila svo verkið klárist á réttum tíma.

  1. Hafðu sambandSegðu okkur í stuttu máli frá búinu og hvenær það þarf að vera tómt.
  2. Frítt verðmatVið komum, skoðum og gefum tilboð.
  3. Þið ákveðiðHvað fer til ættingja, í geymslu, á nytjamarkað eða í Sorpu.
  4. Verkið kláraðVið flytjum allt á sinn stað og skilum húsnæðinu tómu.

Fáðu verð í verkið

Frítt verðmat, engin skuldbinding. Við höfum samband við fyrsta tækifæri.

Aðrar þjónustur
Hafðu samband

Sendu okkur línu
um verkefnið

Leyfðu okkur að meta verkefnið þitt, gjaldfrjálst. Við bjöllum við fyrsta tækifæri.

Veistu ekki hvað búslóðin er stór?Prófaðu búslóðarreikninn. Hann áætlar rúmmál í m³, mælir með bíl og getur sent listann með fyrirspurninni.
Sími454-5464
Netfangflutningslausnir@gmail.com
Hvað viltu gera?

Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að svara fyrirspurninni eða bókuninni og eru ekki afhentar öðrum. Persónuverndarstefna

Póstlisti

Fréttu fyrst af tilboðum

Sértilboð, lausir dagar og góð ráð fyrir flutninga. Við sendum sjaldan og bara þegar það skiptir máli.

Þú getur skráð þig af listanum hvenær sem er. Netfangið er ekki afhent öðrum. Persónuverndarstefna

Umsögn

Hvernig gekk flutningurinn?

Við lesum allar umsagnir. Með leyfi þínu birtum við þær á síðunni svo aðrir viti við hverju þeir mega búast.

Einkunn

Fleiri spurningar?

Hringdu eða sendu línu. Við svörum öllum fyrirspurnum og gefum frítt verðmat.

HringjaFá frítt verðmat