Skilmálar
Það sem gildir þegar þú bókar hjá okkur, hvort sem er tímagjaldsverk eða Dreifing á föstu verði.
Verð
- Öll verð eru með 24% virðisaukaskatti nema annað sé tekið fram.
- Tímagjaldsverk eru reiknuð eftir Verðskrá: tímagjald bíls og bílstjóra, auka starfsmenn og akstur á hvern km.
- Fari verk fram yfir tímann í pakka gildir almennt tímagjald eftir það.
- Álagsgjald getur átt við mjög þunga hluti, til dæmis píanó og ameríska ísskápa.
- Förgunargjöld Sorpu bætast við verð fyrir Sorpuferðir.
- Endanlegt verð færðu í tilboði eftir frítt verðmat.
Dreifing – Milli landshluta
- Verðið byggir á upplýsingum pöntunaraðila um tegund, fjölda, mál og þyngd. Reynist sending önnur en lýst var áskiljum við okkur rétt til að leiðrétta verðið.
- Afhendingartímar eru viðmið og geta raskast, til dæmis vegna veðurs og færðar.
- Sendingar til staða utan þjónustusvæða eru verðlagðar með tilboði.
Pökkun, ábyrgð og tjón
- Sendandi ber ábyrgð á að munir séu tryggilega pakkaðir nema pökkun sé keypt af okkur.
- Ábyrgð á farmi fer eftir landflutningalögum nr. 40/2010. Verðmæta muni ætti að vátryggja sérstaklega.
- Tilkynntu tjón eins fljótt og hægt er, helst við afhendingu, og taktu myndir.
Hættulegur farmur
Við höfum ADR-réttindi og flytjum hættulegan farm eftir staðfestingu frá okkur. Láttu vita fyrirfram hvað er í sendingunni.
Breytingar og afbókun
Ef eitthvað breytist, dagsetning, magn eða aðgengi, láttu okkur vita eins fljótt og hægt er í síma 454-5464 eða á flutningslausnir@gmail.com.
Aðgengi
Viðskiptavinur sér til þess að bíllinn komist að og að leiðin sé greið. Stigar án lyftu eða langur burður kosta ekkert aukalega en geta lengt verkið.
Síðast uppfært í september 2026.
Sendu okkur línu
um verkefnið
Leyfðu okkur að meta verkefnið þitt, gjaldfrjálst. Við bjöllum við fyrsta tækifæri.
Fréttu fyrst af tilboðum
Sértilboð, lausir dagar og góð ráð fyrir flutninga. Við sendum sjaldan og bara þegar það skiptir máli.
Hvernig gekk flutningurinn?
Við lesum allar umsagnir. Með leyfi þínu birtum við þær á síðunni svo aðrir viti við hverju þeir mega búast.
Fleiri spurningar?
Hringdu eða sendu línu. Við svörum öllum fyrirspurnum og gefum frítt verðmat.