Tæming
íbúða
Þegar flutt er á hjúkrunarheimili eða í minna húsnæði, eða þegar ganga þarf frá heimili eftir að ástvinur er fallinn frá, tæmum við íbúðina fyrir ykkur. Þið ákveðið hvað fer hvert. Við berum, pökkum og keyrum.


Þið þurfið ekki að gera þetta ein
Að tæma heimili sem fólk hefur búið í lengi tekur yfirleitt lengri tíma en maður reiknar með. Geymslan, bílskúrinn og skáparnir eru oft fullir af hlutum sem þarf að taka afstöðu til, og það er ekki alltaf auðvelt.
Við förum yfir verkið með ykkur áður en við byrjum. Svo fer hver hlutur á sinn stað, hvort sem það er til ættingja, í geymslu, á nytjamarkað eða í Sorpu.
Við aðstoðum líka við frágang dánarbúa, í samráði við erfingja eða skiptastjóra.
- Til ættingja eða á nýja heimiliðHúsgögn og munir fara þangað sem þeir eiga að fara, líka út á land.
- Í geymsluÞað sem á að geyma förum við með í geymslu þar til ákvörðun liggur fyrir.
- Nytjamarkaðir og SorpaNothæfir hlutir geta farið á nytjamarkað, til dæmis í Góða hirðinn. Afganginn förum við með í Sorpu.
- Pökkun á viðkvæmum munumMyndir, leirtau og annað sem þarf að fara varlega með.
Rólegt og skipulagt
Einn tengiliður fyrir allt verkið, frá fyrsta símtali þar til íbúðin er tóm.
Nærgætni
Margt á heimilinu hefur tilfinningalegt gildi. Við gefum okkur tíma og förum varlega með það.
Allt á einum stað
Burður, akstur, pökkun og Sorpuferðir. Eitt símtal dugar.
Verð fyrirfram
Eftir verðmatið vitið þið hvað verkið kostar, áður en við byrjum.
- Hafðu sambandSegðu okkur í stuttu máli frá heimilinu og hvenær það þarf að vera tómt.
- Frítt verðmatVið komum, skoðum og gefum verð.
- Þið ákveðiðHvað fer til ættingja, í geymslu, á nytjamarkað eða í Sorpu.
- Verkið kláraðVið flytjum allt á sinn stað og skilum íbúðinni tómri.
Áður en við komum
Nokkur atriði sem gera verkið fljótlegra.
- Takið verðmætin fráSkjöl, ljósmyndir, skartgripi og annað sem skiptir máli er gott að taka frá áður en við byrjum.
- Merkið það sem á að fara annaðMiðar eða litaðir límmiðar duga. Þá vitum við strax hvað fer hvert.
- Munið eftir geymslunniGeymslan í kjallaranum, bílskúrinn og háaloftið gleymast oft þegar magnið er metið.
- Lyfta og aðgengiLátið okkur vita hvort það sé lyfta og hvar hægt er að leggja bílnum. Það hefur áhrif á tímann.
Fáðu verð í verkið
Frítt verðmat, engin skuldbinding. Við höfum samband við fyrsta tækifæri.
Sendu okkur línu
um verkefnið
Leyfðu okkur að meta verkefnið þitt, gjaldfrjálst. Við bjöllum við fyrsta tækifæri.
Fréttu fyrst af tilboðum
Sértilboð, lausir dagar og góð ráð fyrir flutninga. Við sendum sjaldan og bara þegar það skiptir máli.
Hvernig gekk flutningurinn?
Við lesum allar umsagnir. Með leyfi þínu birtum við þær á síðunni svo aðrir viti við hverju þeir mega búast.
Fleiri spurningar?
Hringdu eða sendu línu. Við svörum öllum fyrirspurnum og gefum frítt verðmat.